Lagatexti · 1985

Seinasta Augnablikið

Þegar sumarið finnur nístandi nálar vetrarins liðast þokan eftir dalnum, breiðandi gleymsku yfir minningarnar, yfir minningarnar sem þú aðeins sérð. Og þú sérð aðeins Og þú sérð aðeins Þú sérð aðeins Og þú sérð aðeins sem seinasta augnablikið. Augu þín, sem sögðu mér meira en orðin líta spyrjandi á mig. En ég les ekki eins vel og ég gerði. Samt les ég úr þeim Ég les ég úr þeim Ég les ég úr þeim Ég les ég úr þeim seinasta augnablikið. Hendur mínar ekki eins velkomnar. Kossar mínir hafa ekki lengur sömu áhrif. Þó slær hjarta mitt hraðar en nokkurn tímann áður og augun afneita orðunum er ég lít í þau er ég stari í þau er ég lít í þau er ég stari í þau sé ég seinasta augnablikið.

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.