Útsending
Beint streymi
Þegar Höllin fyllist á streymið að ná til hinna. Sjötugsafmælistónleikunum 06.06.26 var streymt beint um Sýn, Símann og Livey — og sama fyrirkomulag verður notað þegar næst verður sent út.
Ekkert streymi er í gangi núna. Næsta útsending verður auglýst hér og á póstlistanum.
Þrjár leiðir að útsendingunni
-
Sýn
Viðburðurinn birtist undir Viðburðir á forsíðu myndlykilsins. Eftir kaup opnast rás 900. Án myndlykils: skráðu þig inn á sjonvarp.syn.is og kláraðu kaupin þar. Viðburðurinn er aðgengilegur í 48 klst. eftir að honum lýkur.
-
Síminn
Farðu í VOD-leigu í myndlykli Símans, veldu viðburði og verslaðu. Einnig hægt í gegnum sjonvarp.siminn.is — þá opnast útsendingin í appinu á viðburðardegi. Hægt að horfa í tímaflakki í 48 klst. eftir kaup.
-
Livey
Netstreymi óháð sjónvarpsáskrift: skráning, greiðsla og áhorf í vafra eða í Livey-appinu fyrir LG, Samsung og Google TV.
Streymissíðan á Livey
Lendir þú í vandræðum með aðgang? Þjónustuver viðkomandi veitu — Sýnar, Símans eða Livey — leysir úr aðgangsmálum útsendingarinnar.