Lagatexti · 1982

Móðir

Móðir, hvar er barnið þitt svona seint um kvöld? Móðir, hvar er yndið þitt? þokan er svo köld. Þokan sýnir hryllingsmynd þvöl er stúlkuhönd. Út úr þokunni líður kynjamynd með egghvasst járn. Ópið, inní þokunni til jarðar féll þar hljótt. Starandi augu, skældur munnur ó, blóðið rann svo hljótt. Lítil stúlka á heiðinni villst hefur af leið. Hún hitti mann á leiðinni undan krumlum hans þar sveið. Móðir, hvar er barnið þitt svona seint um kvöld? Faðir, hvar er yndið þitt? þokan er svo köld.

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.