Lagatexti · 2019

Límdu Saman Heiminn Minn

Ég reyni ástin, að fylgja þér, Eins og þú reyndir,að fylgja mér, Myrkrið og ljós,látlaust grín Á þá sem tínt hafa, sjálfum sér. Ég get ekki fundið þig ástin mín. Og veistu afhverju ég er hér. Æ opnaðu faðminn þinn, Límdu saman, heiminn minn. Lyftin eru lyklar, sem finn' enga skrá Regboga svarta, í augum má sjá. Læstar eru mér, gleðinnar dyr, Vaknaði í myrkri,sem yfir mig lá. Ég er á fleygiferð en hugurinn er kyrr. Það örlar en á, lífisins þrá. Æ opnaðu,faðminn þinn, Límdu saman, heiminn minn. Óreiðan er stormur, innan' í mér Stormur sem enginn,maður sér. Í munni mínum á þögnin ból, Tungan mín er sem, kaldur hver. Ég geti ekki fundið birtu né sól. Æ gullið mitt hvað er ég búinn að gera Mér. Æ opnaðu, nú faðminn þinn, Límdu saman, heiminn minn.

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.