Lagatexti · 2023

Leigjendur taka höggið

Leigjendur eru látnir taka höggið Leikurinn er guðanna skemmtan Launin duga ekki fyrir draumum Martraðir eru í raun eina heimtan Ég flakkaði fjarðanna á milli Hvar frystihúsin voru mitt brauð Ég stálaði hnífinn og lygina skar Í sundur út flæddu orðin rauð Æ taktu þennan dapra draum Sem drengirnir trúðu á Er Stalín lagði sín loforð Logandi af illskunnar þrá Sem snöru um háls frelsis Fargaðu honum gakktu honum frá Hjarta mitt slær alltaf með ykkur Þó einhver sé fullur af efa Jöfnuður handa öllum ætti að vera En ekki brauðmoli úr ríkra hnefa Hallir rísa meðan hreysunum fjölgar Hungur vekur reiði brýnir stál Ójöfnuður vex sem illgresi í regni Einn daginn sérðu reyk síðan bál Æ taktu þennan dapra draum Sem drengirnir trúðu á Sem var ískaldir hlekkir Þaktir blóðugri þrá Stalíns órar og illska hans Fargaðu honum gakktu honum frá

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.