Lagatexti · 1980

Jón Pönkari

Svartir sauðir glatað fé Týndur hirðir, háð og spé Kirkjan öll úr plasti er Kross úr áli, Kristur úr tré Biblían á míkró-filmum tölvustýrðar hugvekjur Boðskapurinn rúllar eins og valtari Jón, - Jón pönkari þjónar fyrir altari Sóknarbörnin sitja í leðurstólum Með stillanlegu baki og dæsa við Bryðja saltkex, smella fingrum Í takt við innbyggt diskóið. Jón er í steik, hvað á hann að segja hverju má hér bæta við Liðið ropar, strýkur um kviðinn Jón, Jón, Jón, Jón pönkari þjónar fyrir altari Orð hans mælast óðar illa fyrir Hann svívirðir okkur, ég segi það með Hann rakkar niður samfélagið Öryggi, tekjur og fasteignaveð Við neglum hann, neglum hann fastan á krossinn og brosum meðan honum blæðir út Dauðans gefum honum kossinn Jón pönkari hangir fyrir altari

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.