Lagatexti · 1998

Jesús Pétur Kiljan og hin heilaga jómfrú og aumingja ég

Veistu hvað ég heyrði í dag? Hamingjan er skrítið lag Ekki er ég að þrasa. Enga á ég frasa. Jú kannski þennan þennan sem leyfir allt þegar hamingjuhjólið er valt. Tunglið, tunglið taktu mig taktu mig strax í dag þangað sem stjörnurnar fara þá skal ég syngja þér lag. Sumir syngja á íslensku - vá! æðislegt, flott. Ekki þykir mönnum það í útlöndum gott. Nei skrælingja mállýskur meika ekki sens. Maður sem syngur þannig eignast aldrei bens. Jesús, Pétur, Kiljan, hin heilagajómfrú Hallgrímur Pétursson - hvað geri ég nú? Veistu hvað ég heyrði í dag? Ísland á sitt ömurlega lag. Ekki er ég að þrasa. Enga á ég frasa. Jú kannski þennan þennan sem leyfir allt þegar hamingjuhjólið er valt. Tunglið, tunglið taktu mig taktu mig strax í dag. Þangað sem hetjurnar fara þá skal ég syngja þér lag. Sumir syngja á íslensku - vá! æðislegt, flott. Ekki þykir mönnum það í útlöndum gott. Nei skrælingja mállýskur meika ekki sens. Maður sem syngur þannig eignast aldrei bens. Jesús, Pétur, Kiljan, hin heilagajómfrú Hallgrímur Pétursson - hvað geri ég nú? Sumir syngja á íslensku - vá! æðislegt, flott. Ekki þykir mönnum það í útlöndum gott. Nei skrælingja mállýskur meika ekki sens. Maður sem syngur þannig eignast aldrei bens. Jesús, Pétur, Kiljan, hin heilagajómfrú Hallgrímur Pétursson - hvað geri ég nú? ú ú ú ú hvað geri ég nú? End

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.