Lagatexti · 1991

Hamingjan Er Krítarkort

Getnaður plús metnaður leiðir af sér Lególand ljóshærða víkinga og dömur með sippuband. Rifrildi, nýjan bíl kúltúr fágað framhjáhald. Falleg börn sem gráta í stíl undir hlýjum pilsfald. Hamingjan er krítarkort hamingjan er krítarkort hamingjan er krítarkort. Anda djúpt, vídeó uppeldi í steríó. Efasemdir vaða uppi sendum þau í gáfnapróf. Andrúmsloftið dauðhreinsað matar hann í friði og ró. Í hjartanu er beigurinn sem í æsku inn sig gróf. Tíminn flýgur, engu lýgur. Líf þitt orðið er látlaust stríð við hégómann sem hefur sest að þér. Þið þekkið ekki börnin. Þín barátta var hörð að brjótast upp á toppin standa um völdin vörð.

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.