Lagatexti · 2023

Ekki í fyrsta sinn

Það er læknir að leika guð Leyfir dauðanum ganga inn Með svarta mold og myrkur Magnað ekki í fyrsta sinn Það dó ung kona í gær Plástur setti á líkama sinn Ljósið yfirgaf augun blá Magnað ekki í fyrsta sinn Þarna úti geisar óveður Unga fólkið okkar er að deyja Hvítar kistur hrópa ekki hátt En hafa svo margt að segja Viljum ekki eymdina sjá Ekki dóttir ekki sonur minn Hugsum við og öndum létt Magnað ekki í fyrsta sinn

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.