Lagatexti · 1985

Eina Nótt Í Viðbót

Eina nótt í viðbót, opnaðu gluggann hleyptu stjörnunum inn. Ég ætla að vaka, fá að horfa á skuggann láta eins og það sé skugginn þinn láta eins og það sé skugginn þinn. Ég fæddist ekki til að missa þig særa þig eða hryggja þig. Því ég þrái ég þrái þig svo sárt Því ég þrái ég þrái þig svo sárt. Í dögun brotna skuggarnir dagurinn sópar brotunum burt. Mér sýnist þeir gráta, gluggarnir. Hvaðan fá þeir tárin? er spurt Hvaðan fá þeir tárin? er spurt. Ég fæddist til að elska þig hugga þig og knúsa þig. Því ég þrái ég þrái þig svo sárt Því ég þrái ég þrái þig svo sárt. Og ég fæddist ekki til að vona að þú sem kona yrðir ekki mín. Því ég þrái ég þrái þig svo sárt Því ég þrái ég þrái þig svo sárt. Ég bíð eftir að á deginum verði slökkt að tíminn komi til mín. Þeir segja hann flakka um veröldina með síamskött sem eitt sinn var ástmaður þinn Pa, da, pa, da, pa, dam sem eitt sinn var ástmaður þinn Pa, da, pa, da, pa, dam sem eitt sinn var ástmaður þinn.

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.