Lagatexti · 2023

Drepa þunglyndið

Ljósið klæðist svörtu Sólin bakvið ský Þú selur útrunna drauma Og drekkur bráðið blý Þig dreymir bara í vöku Dagurinn er blár Einhverntíma fæddist þú En enginn veit hvaða ár Kvíðinn er að kæfa þig Þú kaupir eina bláa Og eina litla hvíta Til að díla við allt þetta smáa Að ösla dauðamyrkur Og drepa þunglyndið Hafa sig á fætur Horfa ekki á bindið Ef dagurinn er draugur Eru þín augun grá Eina leiðin útí frelsið Þú ættir þangað að ná Kvíðinn er að kæfa þig Þú kaupir eina bláa Og eina litla hvíta Til að díla við allt þetta smáa Sólin sýnir andlitið Sest útá grasið Þú heilsar henni kátur Hlæjandi þið masið Um drauma og betri daga Dofinn ert samt og sár Þú veist handan við hornið Húkir blúsinn dökkur og blár

Netklúbbur Bubba

Fyrstur að heyra það.

Nýjar plötur, tónleikar sem fara í sölu og textaverk sem birtast á vegg — milliliðalaust frá Bubba, beint í pósthólfið þitt.